Hæ hæ Hugarar! ;)

Núna fer að líða að afmæli kærasta míns…. eftir 23 daga :) Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að gefa honum….. :/

Við erum búin að vera saman í nokkurn tíma… eða 7 mánuði eða eitthvað…. erum samt búin að þekkjast í 10 mánuði en við vorum ekki saman í einhverja mánuði þó að við höfum verið vinir meirihlutann af þeim tíma :) Við erum mjög náin og erum alveg yfir okkur ástfangin :)

Ég veit ekki hvort ég á t.d. að gefa honum einhvern sérstakan skartgrip, kannski föt, bara eitthvað lítið og sætt eða bara elda fyrir hann eða eitthvað…..

Svo langar mig líka að gera eitthvað sérstakt fyrir hann…. hafa fallegt kvöld eða dag saman :)

Endilega sendið inn hugmyndir! ;) Takk takk!!