Mig langar að vita hvort það hafi margir lennt í svipuðu veseni og ég. Þannig er nú málið að ég kynntist strák á balli einu sinni þegar ég var blindfull og gaf honum númerið mitt. Í þynnkunni helgina eftir ballið tekst honum að sannfæra mig um að hann séi yndislegur gaur, svo hitti ég hann og byrja með honum. Eftir að við vorum búin að vera saman í smá tíma komst ég að því að þetta væri algjör aumingji og hann var altaf að væla yfir því að hann hefði verið lagður í einelti þegar hann var yngri og að ég hafi bjargað honum frá þunglindi og svoleiðist rugl. Þá fór sambandið aðalega að snúast um það hvernig ég ætti að segja honum upp og loksna við hann úr lífi mínu án þess að hann færi að grenja. Mörgum vikum eftir að við byrjuðum saman tókst mér að segja honum að þetta væri ekki að ganga það komu einhver tár og en ég fór bara heim (ég var hjá honum). Eftir að við hættum saman hringdi han ní mig oft á dag til að heyra í mér (það er að segja væla yfir því hvað allir væru vondir við hann og spurja mig afhverju ég vildi ekkert með hann hafa). Ég bað hann fyrst bara kurteisilega um að hætta að hringja í mig og reyndi að hætta að svara honum, sem var erfitt því að hann hringdi altaf aftur og aftur þar til ég svaraði og ef ég skellti á þá hringdi hann alltaf samt aftur. Eftir smá tíma tók ég upp á því að segja honum að ég hefði engann áhuga á honum og að hann væri bara hálfviti og mín mestu mistök hefðu verið að mæta full á þetta ball því ef ég hefði verið edrú hefði ég aldrei talað við hann af því að hann er svo ljótur.
Um seinustu helgi hringdi hann svo á fullu í mig því ég var þá ný komin til landsins frá Portugal og ég sagði honum í von um að hann myndi láta mig í friði að ég hefði verið farin að hitta strák sem ég var að dúllast með áður en að ég kynntist honum á meðan við vorum en þá saman og sagði honum að ég væri enþá að hitta hann. Þegar hann frétti þetta lét hann mig í friði en hringdi í staðinn grenjandi í stelpu í skólanum hjá mér (satan) og sagði henni að ég hefði haldið fram hjá honum (sem er ekki satt en ef hann lætur mig í friði má hann alveg halda það) og hann héldi að ég hefði aldrei elskað hann. En það var ekki nóg heldur hringdi hann líka í frænda sinn og sagði honum frá þessu og lét hann fá númerið mitt. Þessi frændi hans hringdi brjálaður í mig og bað mig um að láta hann fá númerið hjá “framhjá haldinu mínu” og þegar ég neitaði því bað hann mig um að segja honum koma niður í bæ því hann ætlaði að berja hann. Ég neitaði því náttúrulega líka en hann hélt áfram að hringja svo ég lét vinkonu mína fá síman því henni langaði að rífa kjaft. Þá hótaði hann að lemja hana og drepa hundinn hennar en hann hélt að hann væri að tala við mig.

Mig langar að vita þegar þið hættið með einhverjum haldið þið þá altaf sambandi við aðilann í þessu sambandi var ég bara að spá hvernig ég ætti að loksna við hann og hann var meira hrifinn af sambandinu sjálfu heldur en mér.

En ég hef komist að því að ég ætla aldrei aftur að byrja með aumingja og þetta voru bara mistök sem þarf að læra af og já útlitið skiptir máli. ég skammaðist mín altaf fyrir hann og klæðnað hans
Ég tala af reynslu: