Vertu alltaf hress í huga
hvað sem kann að mæta þér,
lát ei sorg né böl þig buga
baggi margra þyngri er.

Vertu sanngjarn vertu mildur,
vægðu þeim sem mót þér braut.
bið þinn guð um hreinna hjarta,
hjálp í lífsins vanda og þraut.

Treystu því að þér á herðar,
þyngri byrði ei varpað er
en þú hefur afl að bera,
orka blundar næg er þér.

þerraðu kinnar þess er grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.

snolla