Þetta er bara spurning spurninganna hjá mér núna!!! Ég fór til þess að hitta hana og hringdi í hana og bað hana að koma að tala við mig. Hún var bara geðveikt treg til þess! Jæja, hún kemur út og þá er þetta ekki hún!!! Þetta var vinkona hennar!!! Þá hafði ég fengið vitlaust nafn og ég var að fara hitta vitlausa manneskju. Ég náði að koma út úr mér hverri (B) ég var að leita að og þá spurði hún (A) mig hvað ég vildi henni. Ég aulaði út úr mér að mig langaði til þess að bjóða henni (B) út að borða. Þá segir hún (A) mér að hún (B) sé búinn að vera með strák í nokkur ár!!!! og þau séu ennþá saman! Þetta var bara neyðarlegasta móment sem ég hef upplifað á allri minni ævi. Maður sér ekki einu sinni svona í bíómyndunum! En allavegana þá kynnti ég hverfið í svona klukkutíma á eftir, bara með hita frá kinnunum mínum. Ég hef aldrei lent í jafn erfiðri stöðu og ég hef heldur aldrei roðnað svona ógeðslega mikið. Svo get ég ekki einu sinni verið sár út af þessu öllu vegna þess að þetta er bara of mikil óheppni!!!! Ég held persónulega að það fari bara allt að ganga upp hjá mér núna því að þetta getur ekki orðið verra! Í alvörunni!!!
Óheppnastur!
Gromit