Heyrðu þannig er það nú að ég kynnstist gaur í nóvember og við byrjuðum að hittast! Allt var bara að ganga vel og sonna en síðan bara hætti hann alveg að hafa samband við mig einum og hálfum mánuði síðar. Við vorum auðvitað ekkert í föstu sambandi eða neitt, en mér fannst samt þessi eini og hálfi mánuður, plús það að við hittust á hverjum degi, nóg til þess að ég ætti rétt á einhverri útskýringu.

Við vorum kannski ekki í viðurkenndu sambandi þar sem við höfðum aldrei beint rætt það, en við vorum voða mikið saman. Ég var búin að hitta foreldra hans og hann mína, vorum líka mikið heima hjá hvort öðru og sonna. En síðan bara eitt kvöldið heyri ég ekkert í honum. Ég var búin að undirbúa mig fyrir afmæli sem við vorum að fara í hjá systur hans, en aldrei heyrði ég í honum þó að ég hringdi og hringdi.

Ég fór náttla strax að pæla í hvort að eitthvað hefði komið fyrir….og einhvern veginn fór ég að spá í það versta..hvort að það væri einhver önnur stelpa í spilinu eða eitthvað, en samt fannst mér það ekki passa þar sem ég var yfirleitt með honum 24/7:S:S svo ég hugsaði nú ekki mikið út í það, enda fannst mér það full mikil paranoid hjá mér!

Ég mætti því bara ein, og foreldrar hans skildu heldur ekki hvað var í gangi! Og aldrei mætti hann allt kvöldið. Ég var auðvitað mjög hugsi allt kvöldið og hafði miklar áhyggjur um að eitthvað hefði bara komið fyrir eða eitthvað! Síðan fór ég bara heim og sonna og prufaði að hringja einu sinni og hætti síðan bara því ég ætlaði ekki að vera eitthvað að böggast yfir þessu.

Heyrðu, síðan leið bara heil vika og ég hafði ekkert heyrt í honum neitt allan tímann..né foreldrar hans!Get sagt það að þessi vika einkenndist af því að ég sat heima grenjandi! hehe

En síðan gerðist það að ég fæ hringinu viku síðar frá honum þar sem hann segir mér að hann sé að fara að flytja úr landi! Hann hafði bara ákveðið það, og hann og vinkona hans ætli að flytja út og fara í nám þar eftir áramót. Ég fékk auðvitað mikið sjokk þar sem þetta kom bara svona allt í einu! Ég hafði aldrei heyrt eða séð þessa vinkonu hans og ég varð brjáluð við hann og kallaði hann öllum illum nöfnum í gegnum símann…grunaði að það væri eitthvað i gangi á milli þeirra! Ég varð svo reið að ég slökkti á símanum mínum og svaraði ekki hringingum í viku!

Þegar ég var loks, viku seinna, búin að ,,jafna" mig ákvað ég að hringja í hann og fá betur útskýringu. Hann svaraði ekki símanum sínum svo ég fór heim til hans. Þar tók mamma hans á móti mér og sagði mér að hann væri farin úr landi. Það kom mér svo á óvart að ég stóð þarna á miðju gólfinu í algjöru sjokki og hágrét! Mamma hans sagði mér að hann hafi sagt sér að ég vissi alveg að þessu, þess vegna hafði hún ekkert haft neitt samband við mig þar sem hún hélt að ég hefði þá bara sætt mig við þetta.

Ég fór síðan bara heim og grenjaði úr mér augun og var þannig næstu daga! Ég hef ekkert heyrt né séð af honum síðan, en ég tala við mömmu hans á hverjum degi og er mjög góð vinkona hennar. En ég skal segja ykkur það að þetta er versta reynsla sem ég hef lent í!

Ég er alveg hætt að hugsa um hvar hann er staddur, en ég veit að hann býr ekki á landinug heffur ekkert komið aftur síðan að hann fór. Hann hefur ekkert samband við foreldra sína og hringir aldrei!

En já…svona var þetta!