Er hann að leika sér að mér? Ég er ástfangin, og það mikið meira en upp fyrir haus. Ég sé ekki sólina fyrir honum. Ég elska hann.
Ástina, þessa sömu og ég ber og finn fyrir til hans fæ ég ekki endurgoldna.


Ég er átján ára gömul og hef verið í einu sambandi áður, það endaði illa og skrifaði ég eitt sinn grein um það hérna. Þegar því sambandi lauk var ég búin að kynnast þessum tiltekna strák, hann vildi allt fyrir mig og alla gera, svo hjálpsamur og góður. Við vorum góðir vinir og töluðum mikið saman. Samskiptin duttu þó niður þegar hann kynntist stelpu í bænum sem var einstæð móðir. Fólk sem ég þekkti kannaðist við hana og sögurnar af henni voru ekki góðar. Hann mátti varla gera neitt en ég var svo heppinn að fá að hitta hana einu sinni þegar hann var að sækja mig eftir djamm og gaf mér far heim. Þá var hún með, hatrið í augum mínum beindist að henni. Hún fór svo illa með hann. Því lauk um sumarið þar sem hann fór aðeins vitlaust að í kynlífi og lokaði hún á hann án þess að segja honum eða öðrum neitt. Hætti að svara, hætti öllu. Hann hefur ekki séð til hennar síðan. ,

Nokkrum vikum seinna var önnur stelpa komin í spilið og ég líka. Við vorum bara að spjalla en það leyndi sér ekki að hann var ástfanginn af hinni. Eitt skipti var ég í vinnunni og hann leit við með hana, bað mig fallega um að ná í eitthvað fyrir sig og stúlkan leit á mig eins og einhverja druslu. Skildi núna hvernig hinni tilteknu stelpunni hefði liðið þegar ég leit hatursaugunum á hana.
Hún bjó erlendis og það kom að því að hún þurfti að fara til baka eftir sumardvölina og tók hann þá ákvörðun að kíkja til hennar í viku. Það entist ekki lengi þar sem hún henti honum út (skilst mér) Hann var þá kominn heim og á lausu, ætlaði mér að næla í hann.

Ég fór á djammið með stelpunum í okt og tókum við tjúttið saman niðrí bæ eftir ballið. Löbbuðum heim og eyddum nóttinni saman. Höfðum gert það áður svo það var lítið mál. En takið eftir að hann fór út í Nóv. Svo þetta var mjög laust samband hjá þeim og talaði hann lítið um hana við mig.
Hann kom heim.. ég var að fara erlendis í verslunarferð í nokkra daga svo ég tók ekki símann minn með til að hugsa málið og ákveða hvað ég ætti að gera í sambandi við hann. Það leið ekki á löngu þar til ég var lent og kveikti á símanum og fékk sms “Velkomin heim :-*” Þar með hófst allt saman. Fórum að hittast og það leið ekki á löngu þar til ég var farin að gista þar hverja nótt. Ég var hamingjusamari en allt og skapið breyttist.
Hann á marga vini, og marga kvk-vini. Hann kann held ég ekki að hafna spjalli við kvk. Eitt kvöldið var sérstakt, ég sat ofan á honum og við vorum að spjalla ásamt því að hann var í tölvunni á msn. Ég tók ekki eftir því sem hann var að skrifa nema allt í einu sé ég að hann er að klæmast við stelpu, sem í þokkabót var eldri en hann og bjó á öðrum stað, móðir. Reiðin magnaðist og ég ákvað að fara bara að sofa. Ræddi þetta við hann seinna daginn eftir. Svo virðist vera sem þetta hafi ekki skipt hann neinu þar sem hann gerði þetta aftur stuttu seinna. Ekkert mál. Finnst bara í góðu að klæmast við aðra þegar maður liggur við hliðin á honum. Smessin hrundu á fullu og síminn hélt ekki kjafti mestmegnið af nóttinni og sá ég eitt og eitt sms. Sms sem mig langaði ekki til að sjá, grófar spurningar!
Í þetta skipti endaði þetta illa og við hættum að tala saman smá, þá kom sms allt í einu “Ætlaru bara að hætta að tala við mig því ég vill ekki ríða þér? Farin í fýlu?” Hvurslags spurning var þetta..Ég hélt að þetta kallaðist samband. Það fór að hægja á öllu og við hittumst æ sjaldnar.
Ég ákvað svo þrátt fyrir skoðanir vina minna sem öll voru sammála um að hann ætti mig ekki skilið, en ég fór samt og eyddi með honum nóttini. Seinna morguninn eftir kom sms “Ég vill allavega ekkert meir frá þér í bili.” Ég hrundi og áttaði mig á því hversu mikill auli ég hefði verið að skríða til hans aftur. Svo að degi til kom “Ég hef engan áhuga á að sofa hjá þér” ,
Hversu mikið er hægt að brjóta eina manneskju niður?
Þetta eru ein verstu orð sem þú getur látið út úr þér við kvk. Ég var særð.
Enn og aftur reyndu vinir mínir að koma vitinu fyrir í hausnum en það gekk illa.
Ég er yfir mig ástfangin af honum og er þreytt á að heyra alltaf “Ég veit ekki hvað ég vill” Ég get ekki beðið endalaust.
Ég er gjörsamlega niðurbrotin.


Ég veit ekki hvernig ég á að haga mér, langar til að fara til hans, en til hvers. Er hann ekki bara að leika sér að mér??