Veit að þetta er ekki beint grein en ég veit samt að það eru margir sem munu fatta hvað ég er að meina með þessu. Margir sem munu skilja þetta :)

Það sem þú gerðir ekki.

Mannstu þegar ég fékk lánaðann nýja bílinn þinn
og ég beyglaði hann,
Ég hélt þú myndir ganga frá mér
- En þú gerðir það ekki -

Og mannstu þegar ég dró þig niður á strönd
þú sagðir að það myndi rigna
Ég hélt þú myndir segja, ég sagði þér það
- En þú gerðir það ekki -

Og mannstu þegar ég daðraði við alla strákana
Til að gera þig afbrýðissamann og þú varðst það
Ég hélt þú myndir fara frá mér
- En þú gerðir það ekki -

Og mannstu þegar ég missti jarðaberja ísinn
yfir allt teppið í bílnum þínum
Ég hélt þú myndir brjálast
- En þú gerðir það ekki -

Og mannstu þegar ég gleymdi að segja þér að þetta væri
síðkjóla og smókingball og þú mættir í gallabuxum
Ég hélt þú myndir hætta með mér
- En þú gerðir það ekki -

Já það er nú eitt og annað sem þú gerðir ekki
en þú kannt að meta mig og þú elskaðir mig
og það var svo margt sem ég vildi gera fyrir þig þegar þú
kæmir frá Víetnam
- En þú gerðir það ekki -
Hell Yeah :D