Okey þetta er frekar flókið og langt en ég er að deyja, ég er svo stressuð, veit ekkert hvað ég á að gera og mig vantar hjálp.

Sko málið er það að fyrir rúmum mánuði hitti ég strák, sem er mjög skemmtilegur og hress. Köllum hann bara Óla.
Síðan við hittumst fyrst þá erum við búin að tala reglulega saman og hittast oftar, og mér líst mjög vel á hann. Þetta er fyrsti strákurinn sem ég hef hitt sem er ekki einhver fáviti, þetta er mjög góður og vel gefinn strákur, hreint út sagt bara æðislegur strákur.
Alltaf þegar ég hitti hann þá kyssir hann mig bless og leiðir mig og svona geðveikt sætt…
(Við búum sko ekki á sama stað).

En síðan á menningarnótt þá hitti ég vin minn sem er í sama skóla og ég. Köllum hann Jóa. Ég var svolítið skotin í honum í vor og fyrri hluta sumarsins, áður en ég hitti hinn gaurinn.
En allaveganna, ég og Jói vorum bara eitthvað að spjalla, en þá segir þessi hann mér að hann sé hrifinn af mér, og hafi verið það í sumar og eitthvað svoleiðis…
Og ég var frekar hissa, en sagði honum að mér fyndist það leiðinlegt en það væri eitthvað í gangi á milli mín og annars stráks, en ég sagði honum að ég hefði verið að spá í honum fyrir stuttu, hann væri bara aðeins of seinn.
Svo var hann alltaf að spyrja mig, hvorn ég vildi, hann eða “Óla”, og ég sagðist ekki vera viss núna eftir það sem að hann (Jói) væri búinn að segja mér.

Ég samt hallast meira að Óla, en ég veit ekkert hvað hann vill og ég þori varla að spyrja hann út í okkur því að ég vil ekki missa hann, hann er svo æðislegur strákur. Honum finnst líka svo langt á milli okkar, þó að það sé það í rauninni ekki, það gæti alveg gengið (eða það held ég allavega). Mér finnst við passa betur saman, við eigum ýmislegt sameiginlegt.

En kosturinn við Jóa er sá að hann er á sama stað og ég, sem er þægilegra, og þetta er alveg frábær strákur líka.
Ég er bara alveg á báðum áttum! Ég vil þá báða, get ekki valið á milli.

Ég veit ekki hvort ég geti þolað að heyra viðbrögð Óla þegar ég spyr hann út í okkur, en ég verð samt að fá að vita það.
Svo er ég svo hrædd um að ég sé að missa af Jóa. Ohh þetta er svo flókið! :S
Hvað á ég eiginlega að gera? Og gerið það, engin skítköst :)

Takk fyrir
kveðja,
friend
Ég finn til, þess vegna er ég