Jæja, um ævina hef ég sofið hjá frekar mörgum stelpum og ég ætla aðeins að segja ykkur frá því. Ég hef sært allveg nokkuð margar stelpur. Þannig er málið að ég hitti kannski einhverja stelpu í partyi og byrja að reyna við hana og það endar mjög oft með því að við sofum saman. Ég er í mjög stórum vinahópi með mjög mörgum stelpum og ég hef allveg sofið hjá mjög mörgum í vinahópinum og sært þær mjög margar, en aftur á móti á ég líka stelpu vinkonur sem ég myndi aldrei sofa hjá heldur get ég talað við þær um allt. Þær t.d. segja oft við mig að ég eigi ekki að vera að þessu því stelpunum sárnar mikið, og að ég sé bara að spila með tilfinningar fólks. Það hefur oft verið sagt við mig að ég sé voðalega góður að tala við stelpurnar, eða einhvernveginn bara plata þær í rúmið. og ég vill bara benda á að ég er ekkert stoltur af þessu, heldur finnst mér þetta mjög leiðinlegt, en ég bara get ekkert hætt þessu. En það er ekki aðalmálið, heldur er það að ég seinustu helgi svaf hjá fyrrverandi kærustu vinar míns sem er svona,, já ágætis vinur minn. og daginn eftir það svaf ég hjá fyrrv. kærustu besta vinar míns. Stelpunum fannst ekkert að þessu en ég var með svoldið mikla sektarkennd eftir þetta. Ég lít alls ekki á stelpur sem eitthvað bara til að “losa í”. Heldur er ég núna ástfanginn af stelpu úr vinahópnum. Hún er 1 ári yngri en ég og ég hef ekki sofið hjá henni. Ég hef samt lent með henni einn inní herbergi en það endaði ekki þannig að við sváfum saman heldur vorum við bara að kyssast og tala saman. Núna eru örugglega vinkonur hennar að segja henni að ég sé bara að nota hana því ég hef allnokkuð oft notað stelpur og ég vill ekki að hún haldi það og ég vill sko alls ekki nefna það við hana því þá heldur hún örugglega að ég sé að segja þetta bara til að nota hana.

Því spyr ég, Hvernig ætti ég að geta komið orði að því að ég sé ekki að nota hana?
————————————————-