hæ ég er 16 ára stelpa og er búin að vera með strák í nærri 10 mánuði og eru það búnir að vera frábærustu mánuðir í lífi mínu.
ÉG elska hann rosalega mikið og allt það og við erum mjög ástfangin. En það er eitt vandamál og það er ein vinkona hans´og hefur það verið besta vinkona hans fyrir utan mig ( held ég að minnsta kosti). Frá því að ég hitti hana hefur hún verið ekkert annað en leiðinleg og mesta bitch sem ég þekki. T.D. um daginn átti hún afmæli og kærastanum mínum auðvitað boðið og var þetta afmæli svona grill og svo partý, mér var boðið að koma í partýið .Kærastinn minn ákvað að drekka í þessu partýi en ekki ég því ég átti að fara að keppa í fótb. daginn eftir og gilda því áfengisreglur. En burt séð frá því þá ákvað ég að mæta á svæðið vinkona mín keyrði mig en vildi ekki koma inn með mér svo ég fór ein inn og í svona gúddí fíling ( þrátt fyrir að ég var ekki að drekka sem er bara allt í lagi það er hægt að skemmta sér án þess a' drekka) ok ég kom inn og kærasti minn kom og kyssti mig og knúsaði en vinkona hans heilsaði mér ekki( við sem erum búin að vera saman í 10 mánuði)og hún gat ekki sagt hæ, fyrr en ég fór til hennar og sagði hæ til hamingju með afmælið svo sagði ég að ég hefði hjálpað kærastanum mínum að velja gjöf handa henni og hún bara hunsaði mig. Mér var farið að líða frekar illa en reyndi að gera gott úr þessu. Svo kom kærastinn minn og sagðist ætla að skoða græjurnar í bíl hjá strák í partýinu og sagði mér að ég mætti bíða hjá árna( vin hans) hann ætlaði bara að vera smá stund. Ég sagði ok en ákvað svo að fara en þegar ég ætlaði að labba út þá var vinkona hans og vinkona hennar að labba út með þeim og þær horfðu þvílíkt tussulega á mig og lokuðu hurðinni á mig.´Mér var farið að líða hræðilega, stóð þarna eins og algjör hálfviti. Ég ákvað þá að hringja í vinkonur mínar og spjalla við þær um það sem hefði gerst. Síðan komu þau inn eftir doldin tíma og aftur þessi tussusvipur og það fór geðveikt í taugarnar á henni að ég skildi halda í höndina á kærastanum mínum. Svo fór ég að taka eftir því að vinkona hans var allan tíman að reyna að nudda vinkonu sinni upp að kærastanum mínum og lúmskulega ýta mér frá. Svona var þetta allt kvöldið og það endaði með því að ég labbaði út með tárin í augunum og hringdi grátandi í vinkonu mína og bað hana um að sækja mig og auðvitað gerði hún það( hvað gera vinir ekki fyrir vini sína). Vinur kærastans míns sem er vinur minn líka stóð með mér og var allan tíman að segja við mig að þær væru öfundsjúkar út í mig því ég hefði allt það sem þær höfðu ekki. En þetta var ömurlegt kvöld mér hefur aldrei liðið jafn illa en það er allt í ´góðu milli mín og kærastans míns núna sem er gott en kærastinn minn er ekki alveg að skilja hvernig mér líður með þetta. En hvað á ég að gera ?? ég spyr bara er hægt að vera jafn mikil tussa og hún er..Ykkur finnst þetta kannski ekki neitt og ég sé að gera mikið úr þessu.. Þetta lítur kannski eins illa út þegar maður er að segja frá en hvað finnst ykkur ?