Ótrúleg útgeislun af einni manneskju, andlit ólíkt öllum öðrum, svo fagurt og saklaust, húðin hrein og mjúk, alveg yndislega djúp og falleg augu. Endalaust fallegt bros og svo gefandi, gáfur og skynsöm rökhugsun… ekkert fljótræði, líklegast ein traustasta manneskja sem ég þekki! Bara að sjá þessa manneskju… fær mann til þess að kikna í fótunum, hjartað slá örar, og fyrst og fremst að finnast maður öruggur… í öruggum höndum. Þessi manneskja er BARA gefandi og góð, ber virðingu fyrir öllu og öllum… ég held… nei, ég veit… Ég elska MIG!
Minn… Gromit