Við teljum okkur trú um að lífið verði betra eftir að við:
göngum í hjónaband
eignumst barn og og síðan þegar við eignumst annað barn .
Síðan verðum við ómöguleg yfir því að börnin eru enn svo
ung og teljum að við verðum ánægðari er þau eldast. þegar
það gerist verðum við pirruð á því að þurfa að takast á við
unglingana okkar og teljum okkur verða ánægðari þegar þeir
vaxa úr því aldurskeiði.
Við teljum okkur trú um að við munum öðlast meiri
lífsfyllingu loksins þegar:Maki okkar tekur sér taki, þegar
við fáum betri bíl, þegar við komumst í almennilegt frí eða
þegar við setjumst í helgan stein.
Sannleikurinn er sá að það er ekki til betri tími til að
verða Hamingjusamur heldur en einmitt núna!?.. því ef ekki
núna hvenær þá?
Lífið er alltaf fullt af vandamálum. Það er best að horfast
í augu við það og að vera hamíngjusamur þrátt fyrir það.
Lengi vel fannst mér sem lífið væri rétt að byrja?Þetta
eina sanna líf.En það var allt sem stóð í vegi fyrir
því,eitthvað sem þurti að yfirstíga fyrst,einhver ókláraður
tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir.
Síðan mundi lífið byrja. Einn daginn rann það upp fyrir mér
að allar þessar hindranir voru lífið sjálft."
Þetta viðhorf hjálpar okkur að skilja að það er engin leið
að hamingjunni.
Hamingjan er leiðin. Njótum hverrar stundar sem við eigum.
Njótum hennar og okkur tekst að deila henni með öðrum sem
er nógu sérstakur til að verja tíma okkar með. Og munum að
tímin bíður ekki eftir neinum.
Hættu að bíða, þar til þú sest í helgan stein , eða færð
þér nýjan bíl, eða hús, þar til þú hefur borgað upp bílinn,
eða húsið, þar til í vor, þar til í sumar, þar til í haust,
,þar til í vetur,þar til þú ert búinn að fá þér í glas,þar
til runnið er af þér, þar til þú deyrð, þar til þú ákveður
að það er enginn annar tími til betri en eimitt nú til að
vera hamíngjusamur!


Hamingjan er ferðalag ekki áfangastaður.
Til umhugsunar að lokum!
!!Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna.´´

!!Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur)
!! Dansaðu eins og enginn sjái til þín.´´