Mögnuð Hljómsveit
Hljómsveitin Kyuss, kölluðu sig fyrst Sons of Kyuss, gáfu svo út þessa plötu sem heitir einmitt Sons of Kyuss en breyttu nafninu svo fljótlega í Kyuss.
Þetta er Zack de la Rocha en þarna er hann að syngja með hljómsveitinni sinni Rage Against The Machine sem komu nýlega saman aftur. En allir nema Zack stofnuðu Audioslave sem er einstaklega leiðinleg hljómsveit, sérstaklega miðað við hvað Rage Against The Machine voru og eru ótrúlega góðir, enda uppáhaldshljómsveitin mín.
Þessi gaur hefur verið minn uppáhaldstónlistamaður í tíu ár. Hann er maðurinn og röddin bakvið The Sisters of Mercy og er víst alveg snargeðbilaður og ótrúlega leiðilegur. Hann er eini originalmeðlimur Sisters eftir nema trommuheilinn Doktor Avalanche. Bandið er samt ennþá til þó að ný plata hafi ekki komið síðan Vision Thing 1990(allt í allt 3 plötur og 2 safndiskar]. Ég er ekki viss um að ég myndi vilja hitta þennan mann enn það væri fróðlegt að sjá hvað væri að gerast í kollinum á honum.
kannski alltof auðvelt til að vera trivia :/ allevega þá eru þessi bræður saman í hljómsveit sem á nokkur vinsæl lög og eitt þeirra er næstum heimsfrægt lag.
þetta eru the used. ein af mínum uppáhalds hljómsveitum :)