Andrew Eldritch Þessi gaur hefur verið minn uppáhaldstónlistamaður í tíu ár. Hann er maðurinn og röddin bakvið The Sisters of Mercy og er víst alveg snargeðbilaður og ótrúlega leiðilegur. Hann er eini originalmeðlimur Sisters eftir nema trommuheilinn Doktor Avalanche. Bandið er samt ennþá til þó að ný plata hafi ekki komið síðan Vision Thing 1990(allt í allt 3 plötur og 2 safndiskar]. Ég er ekki viss um að ég myndi vilja hitta þennan mann enn það væri fróðlegt að sjá hvað væri að gerast í kollinum á honum.