Killing Joke er enn ás lífi!
Já Killing Joke er enn þá á lífi og hafa aldrei verið betri eða haft meira að segja,hef verið að hlusta á nýju lögin af plötunni sem kemur út í Apríl
og ég verð að segja að ég á ekki orð
yfir kraftinum og reiðinni í gömlu mönnunum,þeir taka alllar þessar nu-metal og rock wannabes sveitir og snýta þeim með annari hendinni!Dásamlegt að það skuli vera til hljómsveit sam bara harðnar og harðnar
með aldrinum og kemur alltaf með texta með innihaldi,og þó að svartagallsrausið í Jaz Coleman eigi nú ekki við alla þá eru textarnir hans
alltaf hugvekjandi og fluttir af mikilli sannfæringu.Þeir sem héldu að Killing Joke hefði gefið upp öndina á áttunda áratugnum geta tekið gleði sína á ný,þeyr voru alldrei hættir,aðeins í mislöngum pásum,gerðu þrumuplötu 1991 og aftur 96 og 97,síðan liðu 7 löng ár fyrir áhangendur Jókeranna en síða kom mikið
meistaraverk 2003 þar sem þeir sýna svo um munar að þeir eru enn ótrúlega skapandi og nú,Hosannas From The Basements Of Hell,ótrúleg tónlist frá Jaz og félögum á 27unda starfsárinu,nefnið mér aðra sveit sem sendir frá sér sínar kraftmestu plötur með 12tu og 13ándu útgafu!
Nú er einstakt tækifæri til að sjá
Killing Joke í Apríl,tékkið á nýja myndbandinu og lögum á Killing Joke.com,tónleika röð í Evrópu og einnig fróðlegt viðtal við Jaz,Ísland kemur við lítillega við sögu,en eins og margir muna(og margir vilja sennilega gleyma,ha ha)voru þeir mikið á klakanum á tímabili í upphafi ferilsins.