Nú er ég að pæla í því hvort einhver kannist við hljómsveitina Kuai, eigi diskinn, hafi séð þá á tónleikum eða fíli þá yfir höfuð. Sjálfur er ég að fíla tónlistina þeirra í tætlur. Þetta er svona instrumental rokk sem að mínu mati slær nánast alla íslenska tónlist út. Ég hef séð þá live tvisvar og það er svona tíu sinnum betra en að hlusta bara á diskinn því þeir improvisera svo geðveikt mikið :Þ Það er samt eins og enginn tali um þá eða kannski er ég bara eini gaurinn á landinu sem veit hverjir þeir eru
Hvað segið þið?