David Allan Coe David Allen Coe

David Allen Coe er mjög frægur kántrí söngvari með margann slagarann eins og ,,Would You Lay with Me (in a Field of Stone),“ og ,,Take this job and shove it’’. David hefur skrifað mörg lög og er talið að hann hafi skrifað 300 lög yfir feril sinn. David var vinsælastur á 7unda og 8unda árugnum og þótti mjög glæfralegur maður (enda þakinn tattúum og suðuríkjafánum), David var líka meðlimur í mótorhjólaklúbbnum ,,Outlaws Motorcycle Club’’ (þeir áttu að hafa verið óvinir Hells Angels og varla gerist það harðara en það í mótorhjóla bransanum.



,,He had whores, he had ladies, he made love and he had babies!’’

Sögur ganga af því að Johnny Cash hafi uppgvötað David en það eru ekki margar heimildir fyrir því. David hefur í mörgum lögum sínum líkt sér við marga frægari kántrí tónlistar menn eins og Waylon og Johnny Cash. Margir eru sammála því að David Allen Coe hafi eina bestu suðurríkjarödd sem þanið hefur raddböndin á þessari jörð en það sem hefur alltaf haldið aftur af honum eru skoðanir hans á negrum og innflytjendum. David hefur í langann tíma sungið rasista lög með titlum eins og ,,Nigger Fucker’’ sem verður fjallað um hér á eftir. David hefur verið settur í hóp með mörgum mönnum eins og Johnny Rebel þrátt fyrir lítil samskipti á milli þessara ágætu herramanna.

Mörg lög með David sem maður finnur á netinu undir hans nafni eru lög eftir Johnny Rebel og heyrist mikill munur á röddinni þeirra. Fólk veit ekki afhverju þetta er en það er ekki mikill munur á lögunum þeirra og þegar það er verið að ræða um svona gamla menn sem báðir hafa samið svona mörg lög þá er auðveld að ruglast.

Það má líka nefna að David var aðalsöngvari hjá hljómsveitinni ,,Rebel Meets Rebel’’.




Ævisaga manns með gítar í hönd sem ferðast hefur um ófá lönd.

David Allan coe fæddist í Akron, Ohio, þann 6 September árið1939. Hann var alla sína æsku var hann í skólum fyrir óforbetranleg börn og í fangelsum. Ein ýkjusagan sem gengur um hann er sú að hann hafi verið sendur á dauðadeild þegar hann myrti klefafélaga sinn þegar klefafélagi hans bað hann um um munnmök. Rolling Stones skrifuðu grein um atvikið og þá skrifaði David lag sem heitir ,,I’d like to kick the shit out of you’’. Eftir mörg ár í fangelsi var honum sleppt út árið 1967 og var ekki lengi að taka gítarinn í hönd og hann samdi tvo diska um lífið í fangelsinu. Maður gæti sagt að David sé stereótýpa hins klassíska ,,white trash’’ í suðurríkjunum með öll þessu tattú, hlýrabolum og ást sína á mótorhjólum og gerði hann plötu sem hét ,,Long Haired Redneck’’ sem sýnir að hann skítur á gagnrýnendur sýna og er sama um þeirra álit.

Waylon Jennings looked at me and said, Oh ‘goddamn, boy, you look like one of them New York pimps.'”

David hefur lengi haldið sér á mottunni lengi en samt tekist að skapa hneyksli á eftir hneyksli. David fer núna á milli staða í Bandaríkjunum og heldur tónleika og nýtur lífsins því hann á kannski ekki mikið eftir þessi seigi andskoti.

Uppáhalds lagið mitt er (Pick ‘Em, Lick’Em, Stick ‘Em) og finnur maður það á þessum link

http://www.youtube.com/watch?v=XGvJfjm2Eks

Ef þú hafðir áhuga á að hlusta á lagið þá segir hann oft skemmtilegar sögur í lögunum sínum og í þessu lagi syngur hann um konur og hvernig á að sjá um þær.

Takk fyrir mig.