Weezer til Íslands ? Fyrir stuttu reyndi ég að komast í samband við Hljómsveitina Weezer, feitur séns að það myndi ganga. En ég náði allavegana að senda á einhvern gaur sem vann við fan klúbbinn þeirra.

Sá maður sagðist heita Karl Koch, sem mér fannst of gott til að vera satt en ég hef ákveðið að trúa honum. Hér kemur juicy parturinn…..

(fyrir þá sem ekki vita er Karl Koch besti vinur strákanna, yfirmaður aðdáandaklúbbs þeirra og upphaflegi rótarinn þeirra)

Ég spurði út í Evrópu Tour, og þá sagði hann (quote): “I have been pushing for an Iceland gig for years… so hopefully soon.”

Ég túlka þetta sem mjög jákvætt :)

Ég er búinn að halda þessu fyrir sjálfann mig í 2 mánuði og langaði bara að segja ykkur frá þessu :) Jibbý :)
_____________________________