Um daginn fékk ég útborgað, ég keypti einn geðveikan live-DvD disk með Led Zeppelin. Þessir tónleikar eru teknir upp árið 1973
í Madison Square Garden(fótboltavelllinum held ég). Meðal laga á þessum disk eru Whole Lotta Love, Dazed and Confused,
the Songs Remain the Same, Black Dog, Rock´n´Roll,
Moby Dick-(John Bonham tekur laaangt trommusóló með kjuðum og höndunum líka), og síðast en ekki síst Stairway To Heaven.

Þessi diskur á allt gott skilið fyrir dúndurtónleika þar sem Bonham er eins og skriðdreki við trommurnar, John Paul Jones sem er alveg pottþéttur á bassanum(og orgelinu líka), Plant með sinn sérstaka hráa söng og að ógleymdum Jimmy Page sem spilar eins og meistari á Les Paul´inn og Gibson SG Doubleneck´inn sinn.

Í lokin vil ég nefna eina gallann á þessum
tónleikum- Ég, persónulega vill sjá tónlistarmennina spila en ekki myndir af Bonham vera að klappa beljum eða einhver rifrildi á milli tónleikahaldaranna eða lest bruna framhjá í Black Dog.

Þetta eru góðir tónleikar og mæli með að fólk kaupi sér þennan
DvD disk.

PS-Er það rétt hjá mér að myndin Almost Famous höfðar í þessa
mynd\tónleika!?!?