ég er búin að vera að horfa á þraukarann þrjú núna, og verð að segja að mér finnst þessi þáttur frekar slappur. í fyrsta lagi veit maður ekkert hvað þetta fólk heitir þannig að maður veit ekkert hvern fólkið er að baktala þarna. maður veit ekki almennilega út á hvað þetta gengur, jú greinilega að þrauka, en hvað meira, hvað eiga þau að gera, hvernig gengur þessi kosning fyrir sig og hvar sofa þau. svo er svo lítið að gerast, ok, þau eru látin ganga upp á fjall, úúú spennandi og þar fá þau hrísgrjón og eitthvað, það er svo lítil spenna í þessu.