Jæja… þá er seinasti Survivor þátturinn næsta mánudag. Enginn meiri Survivor í langan tíma !
En, spennan er gífurleg núna ! Hver skyldi vinna ? Ég er einn af þessum heppnu sem sluppu við að vita það (sem betur fer) og ég get ekki beðið eftir næsta þætti. Það eru bara þrír eftir : Tina, Colby og Keith. Elisabeth fór (því miður) í seinasta þætti og það voru mjög margir sem héldu með henni ! Þetta verður tvöfaldur þáttur og enginn Reward Challenge. Þeir þrír sem eftir eru kjósa einn burt…. og síðan tekur dómnefndin við (allir hinir sem kosnir hafa verið í burtu, með og eftir Aliciu).

MÍN SPÁ :
Líklegast finnst mér að Colby og Tina taki höndum saman og kjósa Keith burt, því eins og Colby sagði í seinasta þætti : Tina er eina sem ég treysti…. og eitthvað svoleiðis.
Svo verða Tina og Colby semsagt eftir. Hver er þá líklegastur að verða kosinn vinningshafinn af dómnefndinni ? Ég held að það sé Colby. Hann hefur verið vinalegastur og unnið einna mest (á eftir Rodger sem átti alls ekki skilið að fara). Ég veit ekki hvort hann fær vote Jerriar …. hún er kannski búinn að horfa á þættina og sjá hvernig hann þoldi hana ekki. Það gæti líka verið að Jerri fái dómnefndina til að kjósa Tinu … vegna hötunar sinnar á Colby.

En þetta er bara mín ágiskun ! Hver haldið þið að farið ? (og alls ekki segja neitt þið sem vitið svarið !!)