með allar snúruflækjurnar sem þið eigið inn í skápunum ykkar

Ég persónulega er búin að fá ógeð á tveimum meðalstórum skrímslum sem eru búin að taka sér bólfestu inn í skáp hjá mér og langar að tvístra þeim og finna eitthvað gott system á þetta.

Skrímslin urðu til á þann hátt að fyrst eignaðist mar nokkrar snúrur, og eftir nokkra mánuði þá fóru þær að flækjast saman. Í fyrstu var ég bara rólegur og greiddi úr eftir þörfum en eftir smá tíma þá virtist einhver innri vitund vakna í snúrunum og þær sameinuðust í fyrrnefnt skrímsli.

Ég hef háð nokkrar orrustur við þau sem enduðu allar með sigri mínum, en ég hef samt margt betra við minn tíma að gera en að berjast hetjulega við þessi óféti.

Vitið þið um einhverjar skúffur sem þjóna ykkur vel?

Eruð þið með eitthvað kerfi á þessu sem að gæti gagnast okkur hinum sem minna skipulagðir eru?

Endilega deilið því með okku