Smá um Busted Þetta áhugamál hefur ekki verið mjög virkt svo ég ætla að senda inn eina stutta grein um Busted =)

Þessi grein er augljóslega um hljómsveitina Busted.
Í hljómsveitinni eru: James Elliot Bourne, Charlie Robert Simpson (sem er sætastur) og Matthew James Willis.
Matt og James voru vinir fyrir en þeim fannst vanta einn í hljómsveitina þess vegna héldu þeir hljóðprufur og Charlie komst í Busted
Busted urðu fyrst frægir með laginu ,,What I go to school for” eftir það lag komu sex smáskífur með lögunum, Year three thousand, You said no, sleeping with the light on, Chrashed the wedding, Who’s David og Air hostess. Busted komust í Guiness world records-bókina fyrir að vera fyrsta hljómsveitin sem kemur fyrstu þremur smáskífunum sínum í 1., 2. og 3. sætið á listann yfir vinsælustu lögin.
Busted hafa gefið út tvo geisladiska sem heita Busted og a present for everyone. Alls hafa Busted gert 46 lög !

Smá upplýsingar um Meðlimi Busted:

Charlie

Nafn: Charlie Robert Simpson
Fæðingardagur: 7. Júní, 1985
Aldur: 19
Gælunafn: Chase
heimabær: Woodbridge, nálægt Ipswitch
Hljóðfæri: Gítar, bassi, trommur og píanó
Staðreyndir: Bróðir Charlie Spilar rúbbý með Prince William!
Uppáhalds leikona: Britney Spears
Uppáhalds matur: matur með Karrý
Systkin: Tveir eldri bræður, Will og Ed

Matt

Nafn: Matthew James Willis
Fæðingardagur: 8th of May, 1983
Aldur: 21
gælunafn: Matt, Mattie
Heimabær: Molesey nálægt Kingston
Hljóðfæri: Bassi, gítar, trommur
Staðreyndir: Þótt hann sé aðeins 21 árs hefur hann brotið 43 bein í líkamanum sínum.
Uppáhalds leikona: Meg Ryan
Uppáhalds matur: Núðlur
Systkin: Einn eldri bróðir Darren og ein yngri systir Amanda.

James

Nafn: James Elliot Bourne
Fæðingardagur: 13th of September, 1983
Aldur: 20
Gælunafn: JB, Jimmy
Heimabær: Southend-On-Sea, Essex
Hljóðfæri: Gítar og píanó
Staðreyndir: Lék Ólíver í Ólíver! og London Palladium
Uppáhalds leikkona: Cameron Diaz
Uppáhaldsmatur: Pizza
Systkin: Tveir yngri bræður Nick og Chris og ein yngri systir, Mel.

Vonandi nutuð þið lesturins =P