Ég get nú horft á flestar myndir en þessi er ein af þeim leiðinlegri. Ég sé ekki snilldina í þessari mynd sama hvað ég rembist við það, jú myndatakan er voða fín og dramatísk… en þvílík væmni og urrandi leiðindi úff.. mæli ekki með henni. Gagnrýnendur elskuðu hana og áður en þeir sáu hana jafnvel, þetta er bara dæmi um mynd sem menn snobbuðu endalaust fyrir útaf leikstjóranum og castinu. Væmin ofmetin froða, það er minn dómur.