Garðalundur býður upp á Rokksmiðju helgina 13.- 15. febrúar. Smiðjan hefur notið mikillar hylli undanfarin ár og færri komist að en vilja. Forstöðumenn félagsmiðstöðva eru beðnir um að kynna smiðjuna fyrir unglingum sem hafa áhuga og/eða reynslu af tónlistarflutningi eins og gítar-, bassa-, trommu-, hljómborðsleik, söng og tölvutónlist. Rokksmiðjan verður núna haldin í tíunda sinn. Hugmyndin er að safna saman unglingum 13 til 16 ára (8. til 10. bekkur) víðs vegar af landinu, með mismunandi...