Ég var að ljúka mínu þriðja og síðasta ári á vistinni á Ak. Fínt pleis, en ég var samt komin með nóg. Auðvitað frábær allur félagsskapurinn, maður er ekki einangraður einhversstaðar úti í bæ heldur í stóru húsi með fullt af vinum:) Margir kvarta út af matnum. Ég veit ekki, þetta er eiginlega bara venjulegur matur. Sumt er vont, annað gott. Þannig er það bara alltaf held ég. En mér fannst þó maturinn fara versnandi eftir því sem ég var lengur, ég veit ekki hvort það var ég sem var komin með...