Glúmur á Glúmsstöðum Glúmsstaðir í Fljóti í Sléttuhreppi stóðu vestan og framan til í Fljótavík, upp af horni Glúmsstaðarvatns. Bærinn er kenndur við Glúm sem var fyrsti ábúandinn. Hann var hálftröll og ekki einhamur, óþýður í lund og samdi heldur illa við sveitunga sína og reyndar alla aðra. Glúmur var mikill silungsveiðimaður og stórríkur af fé. Þegar aldurinn færðist yfir Glúm tók hann silfur sitt, hvarf inn í Glúmsstaðafoss og kom aldrei til baka. Því var trúað að hann lægi á fé sínu í...