Úr svörum og ritgerðum nemenda: - Aðaleinkenni hesta er að vera sífellt á kappreiðum. - Ígulker teljast til skólpdýra. Þau ganga á prjónum. - Mörg dýr eru með heitt blóð, en í öðrum er það frosið. - Eva fæddist strax á eftir Adam. Því er sagt að Adam hafi ekki verið lengi í París. - Á tímum landafundanna miklu urðu miklar framfarir í kortagerð enda þurfti góð kort svo að löndin lentu ekki hvert ofan á öðru. - Grasekkjumaður er ekkill sem þjáist af heymæði. - Hæsta fjall á Íslandi ber nafnið...