Einkunn: 10 Varðandi Endaþarmsmök þá er það hugmyndin af hafa þetta lag við þennan texta sem er aðalgrínið, finnst mér, ekki lagið eða textinn, en þá væri það frekar textinn að mínu mati. Mér finnst þetta yndislega fyndinn diskur sem grínast með fjölbreyttar tegundir af tónlist(háskólarokk, djass, rapp, íslenskar þýðingar, útileigulög og væmin lög). Ég vorkenni ykkur sem finnst þetta ekki fyndið, því þið hafið augljóslega lent í því að þróa með ykkur algjörlega vitlausan húmor í lífinu....