Þegar vatni er hellt á eld, þá kólnar rótin miklu meira heldur en þegar eldur logar í frosti. Miklu sneggri kólnun. Þegar eldur logar í frosti, þá hitnar hann alltaf jafnóðum og hann kólnar þannig að hann helst stöðugur. Við þetta bætist svo að þegar vatn fer á rót eldsins, þá heftir það aðgang súrefnis að honum.