Það var samt auðveldara að nálgast vatn, heilsugæslu, mat og ýmsar lífsnauðsynjar á tímum Saddams. Ekki að það hafi beinlínis verið gott ástandið þá, en það var hægt að lifa af. Núna hinsvegar er þetta allt saman búið að fara til helvítis. Heilbrigðiskerfi landsins, sem var víst bara ágætt fyrir innrásina, er t.d. hrunið til grunna. Saddam var skepna sem átti fátt gott skilið en eftir hrakningu hans frá völdum hefur ekkert betra tekið við og ástandið jafnvel bara versnað. Annars minntist ég...