Jæja, þá erum við Íslendingar komnir á HM. Það þýðir jafn sundurslitið Íslandsmót eins og á síðasta ári því HM fer fram í janúar eins og EM. Ekki bætir það úr skák ef að fleiri lið en þau fjórtán sem fyrir voru ákveða að taka þátt, er ekkert á móti fleiri liðum, en þá verður tekið í notkun það leikjafyrirkomulag sem samþykkt var á ársþingi HSÍ 2001 um riðlaskipt Íslandsmót. Allir hljóta að vera sammála um að eins og deildin spilaðist í ár var hún frábær. Bæði var hún mjög jöfn og mjög...