Ertu í MR? Persastríðin Aðalgrein: Persastríðin Í Jóníu (í dag Eyjahafsströnd Tyrklands) gátu grísku borgríkin, þeirra á meðal miklar menningarmiðstöðvar á borð við Míletos og Halikarnassos, ekki haldið sjálfstæði sínu og komust undir stjórn Persaveldis á síðari helmingi 6. aldar f.Kr. Árið 499 f.Kr. gerðu Grikkir uppreisn, jónísku uppreisnina, og Aþena ásamt öðrum grískum borgum kom þeim til hjálpar. Dareios I Persakonungur bældi uppreisnina niður og að því loknu, árið 490 f.Kr., sendi hann...