Brettafélag Íslands hefur verið í samstarfi við Bláfjallanefnd núna í vetur og er stefnan sett á almennilegt brettapark í Suðurgili á næstuni. Nú þegar hefur Svanur, brettagaur með meiru, verið sendur út á troðaranámskeið og verður það hans verk að sjá um að halda parkinu í góðu formi í vetur. Þannig að ekki örvænta, það mun koma gott park í Bláfjöll í vetur og verður það opnað með pompi og prakt.