Svo eru náttúrulega þeir til (eins og ég) sem trúa á Guð föður almáttugan og að hann hafi skapað himinn og jörð en bara gert það á þann hátt sem fræðimenn hafa rökstutt. Ég trúi ekki að Adam og Eva hafi verið til í alvörunni, eða að sköpunin hafi farið fram á einungis viku, heldur hafi þessar sögur verið samdar til einföldunar fyrir mennina. Það er nefnilega boðskapurinn sem skiptir höfuðmáli. Og hugmyndin um Guð er í rauninni fáránleg. Það er í rauninni fáránlegt að halda því fram að...