Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: uppáhalds blúsarinn þinn?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
En ég er bara svo fordómafullur að mér finnst hreinlega þessir bresku 60's rokk/blúsarar ekki vera alvöru blúsarar enda er það staðreynd að þeir komast ekki með táneglurnar þar sem gömlu meistararnir hafa hælana. En þetta er auðvitað bara mín skoðun, samt flokka ég þetta aðallega sem rokk.

Re: uppáhalds blúsarinn þinn?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já Crossroads er allavegana hreint Blúslag enda upphaflega samið af Robert Johnson.

Re: Lordi Grímulausir

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Afhverju, ég meina er ekki í lagi að birta nokkrar saklausar myndir af fólki.

Re: Pedo Almodóvar

í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hvernig þá?

Re: uppáhalds blúsarinn þinn?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Úps, skrifaði venjuleag óvart tvisvar.

Re: uppáhalds blúsarinn þinn?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já þeir spila kannski oft Blús en þeir væru samt skilgreindir sem rokkhljómsveit venjulega venjulega.

Re: Charlie Mingus

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það spila nú ekki margir Jazzarar á Cello.

Re: uppáhalds blúsarinn þinn?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Engar af þessum hljómsveitum sem þú nefndir spila hreinan og beinan blús, þetta eru allt rokkhljómsveitir með blús ívafi.

Re: Mestu vonbrigði?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mér fannst American History X alls ekki vera léleg, mér fannst þetta vera alveg mjög flott mynd. En hinsvegar fannst mér hún ekki eins góð og ég hélt að hún yrði.

Re: Stórsveit Reykjavíkur

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta var nú bara létt grín ;)

Re: Stórsveit Reykjavíkur

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég hélt að hann væri bara einn maður.

Re: Einhverjar góðar ?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það væri nú betra að segja hvernig myndir þér finnst skemmtilegastar. Annars mæli ég sterklega með Chinatown sem ég keypti mér nýlega og einnig með Mulholland Drive (sem ég sá einnig fyrir stuttu) sem hlýtur bara að vera ein flottasta mynd sem ég hef séð.

Re: 21 and counting (Roger waters)

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Nei, það verður aldrei hægt að sjá þá alveg alla saman aftur en ég verð nú bara að segja að persónulega finnst mér tímabilið eftir að Syd Barrett hætti vera MIKLU flottara heldur en þegar hann var í hljómsveitinni.

Re: Led Zeppelin

í Gullöldin fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já nákvæmlega, ég skil ekki afhverju allir halda að þeir séu svona cool með því að hlusta á einhverja gamla dauða dópista með enga hæfileika.

Re: gullaldarsveitir??

í Gullöldin fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég verð nú eiginlega að verða ósammála þér, The Clash er Pönkhljómsveit og pönkið var nokkurs konar uppreisn gegn því sem hafði verið að gera áður fyrr. Pönkið varð til að stórum hluta vegna þess að fólk var einfaldlega orðið þreytt á öllum þessum útúrsýrðu 15 mínútna gítarsólóum og furðulegum textum og vildi einfaldlega komast aftur í einfaldleikann sem hafði átt sér stað í upphafi rokksins. Þ.e.a.s. einfaldur texti, stöðugur taktur og einfaldar laglínur. En ef við hugsum um þetta þannig að...

Re: Mestu vonbrigði?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, svona er smekkur manna mismunandi, ég skildi og fattaði A Clockwork Orange strax þegar ég sá hana held ég allavegana.

Re: Mestu vonbrigði?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, ég varð svona fyrir dálitlum vonbrigðum þegar ég horfði á American History X fyrir stuttu, var búinn að heyra mjög mikið hvað þetta væri æðisleg mynd osfr. en síðan fannst mér hún bara alls ekki eins byltingakennd og margir aðrir hafa sagt. En náttúrulega eins og þú sagðir verður maður bara að gefa þessu aftur séns.

Re: Mestu vonbrigði?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég verð nú að segja að mér fannst A Clockwork Orange fara fram úr öllum mínum væntingum, alveg MÖGNUÐ mynd!

Re: Þekkir þú posterið?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
3. MASH

Re: Nýir Ghost Rider trailerar.

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hvorugur linkurinn virkar.

Re: Sóló vikunnar!

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég verð að viðurkenna að þetta var eitt það furðulegasta sem ég hef heyrt á ævi minni!

Re: Roger Waters

í Gullöldin fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég verð að viðurkenna að mér finnst hann hafa verið alveg HRÆÐILEGA ófríður á sínum yngri árum en hann hefur batnað alveg stórmikið.

Re: "Zappa Plays Zappa" í laugardalshöllinni 9. júní

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Tja ég er nú sammála honum að sumu leiti, ég veit nú ekki alveg hvort þetta á eftir að verða fullur salur þarna. Sjáðu bara hvernig fór með Iggy Popp.

Re: "Zappa Plays Zappa" í laugardalshöllinni 9. júní

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Nei, góður punktur. Annars var ég bara að hafa eftir einum blaðamanni, samt viðurkenni ég að þetta var soldið asnalega sagt hjá mér.

Re: "Zappa Plays Zappa" í laugardalshöllinni 9. júní

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hefði nú bara ekki verið málið að senda þetta inná /Tónlist í staðinn fyrir að senda þetta á annaðhvert tónlistaráhugamál hérna. Svo eru þetta ekkert það mikil stórtíðindi, ég meina mér finnst það töluvert merkilegra að sjálf Pink Floyd gæti verið að koma hingað. Ég hef nú bara eftir einhverjum blaðamanni fyrir stuttu “Það er varla að meistarinn sjálfur hefði getað fyllt Laugardalshöllina, hvað þá synir hans”.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok