Ég er á Skoda Oktavia 2007, dísel. Þetta eru frábærir bílar, rosalega gott pláss fyrir fætur og ég kem alveg nokkrum golfsettum í skottið. Díselvélin er með einhverri langtímaolíu svo það þarf ekki að fara eins oft með hann í smurningu og svona. Ég hef ekki lent í neinu veseni síðan ég keypti hann nýjann. Fínn beygjuradíus, ágætis hröðun. Og eyðslan er ótrúlega lítil, það stenst alveg sem sagt er um hann þar. Hef eiginlega ekkert slæmt um þá að segja.