Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Virgin Suicides (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Var bara ein filmundar sýning á þessari mynd? Kemur hún ekkert meir? Kemur hún á spólu? Veit þetta einhver? Ég komst ekki þann 12. júlí þegar myndin var sýnd en mig langar mikið að sjá hana

Talbína

Fight Club (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég fékk fight Club á DVD í jólagjöf, hann var keyptur í BT en það er ekki íslenskur texti, ég hélt að íslenskur texti væri á öllum myndum í Evrópskasvæðinu, þe ef myndin hefur verið þýdd er þetta mikill misskilningur?

Talbína

Dancer in the Dark (4 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég veit að hún er komin út á DVD í BNA en er hún komin út í Evrópu og fæst hún hérna?

Talbína

Skoðanakönnun (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað er með þessa skoðanakönnun? Svarmöguleikarnir eru vægast sagt ófullnægjandi, ég held það þyrfti að fara að skoða þessar skoðanakannanir betur.

Talbína

? (34 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef lengi velt þessu fyrir mér: Ef allir í heiminum væru NÁKVÆMLEGA eins, gæti manni þá verið illa við sjálfan sig?

Krónan (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er farin að hafa verulegar áhyggjur af gengi krónunnar, ég meina dollarinn í 109? og Seðlabankinn farin að grípa inní aftur? Er Davíð að ljúga? Var aldrei neitt góðæri?

"Lækkun" á SMS (17 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég rak augun í nokkuð í bæklingi frá Landsímanum sem var dreift inn á flest heimili í landinu. Þar var m.a. verið að tilkynna um lækkun á SMS sendingum í Frelsi ú 10 kr niður í 9 kr og er ekkert nema gott um það að segja en svo las ég lengra og þá kom í ljós að samhliða lækkununni var búið að afnema 3 frí á dag svo það er stór sspurning hvort þetta sé einhver kjarabót…

Sjónvarp (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki viss um að þetta eigi heima hér en þannig er mál með vexti að ég ætla að kaupa mér sjónvarp sem má ekki kosta meira en 100.000 kr og ég var að pæla hvort einhver væri með ábendingar eða bara eitthvað

Talbína

Jafnrétti (4 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég vil benda öllum sem hafa áhuga á jafnrétti kynjanna og þessháttar og líka þeim sem eru á móti því að kíkja á mjög athyglisverða umræðu á Undirtóna áhugamálinu. Þar kemur glöggt í ljós hversu stutt við hér á Klakanum erum í raun komin í jafnréttisumræðunni og hve fordómarnir eru djúpstæðir og sterkir í ungum karlmönnum.

Höfundar (2 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það væri ágætt ef þeir sem senda inn brandara gættu þess að geta hvaðan brandarinn er fenginn eða hvort hann sé frumsaminn.

Gítar (1 álit)

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég var að pæla í að fjárfesta í kassagítar fyrir einhvernhluta sumarhýrunnar. Ég kann ekkert á gítar og vantar þessvegna ekkert neitt fínt en þetta má samt ekki vera algjör drusla. Mig vantar að vita hvað er sangjarnt að borga, hvort ég ætti að kaupa mér bara nýjan gítar og þá hvað a tegund. Öll góð ráð eru vel þegin.

Erykah Badu (8 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Erykah Badu er ein af þeim sem þorað hefur að skapa sér sinn eigin stíl, hún getur verið mistæk en hún má það líka því hún hefur ekki her manna til að klæða sig. Hún var sértaklega flott á Grammyverðlaununum með armbönd sem vinkona hennar gerði og ekki jafn mikið tískufórnarlamb og margir aðri

Bandaríkin (11 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef heyrt að í Bandaríkjunum sé fæðingarorlof bara 3 mán og mæður fái litlar eða engar greiðslur frá ríkinu, er þetta satt?

Mikhael Torfason (7 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef ekki lesið bók eftir hann en langar til þess og var að pæla á hverri ég ætti að byrja. Endilega mæliði með einhverri sem ykkur fannst skemmtileg. Takk

Hvað var málið með Adrian Newey? (1 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Skildi einhver þetta mál með Adrian Newey, McLaren og Jagúar? Ég skil ekki hvernig þetta byrjaði allt saman og bara ekkert?

Bréf til Láru (3 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er nýlega byrjuð að lesa Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson og þó að þetta sé hundgömul bók þá er samt margt í henni sem á við enn þann dag í dag. Stíllin er sérlega skemmtilegur og fyndinn en grafalvarlegur á stundum. Það er mikið um tilvitnanir í ýmsa menn og sumar þeirra eru ansi hreint góðar. Ég mæli eindregið með þessari snilldar bók.

Pan eftir Knut Hamsun (2 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hefur einhver lesið þessa bók? Ég las hana í fyrra og skil ekki ennþá útá hvað hún gekk. Knut Hamsun fékk Nóbelsverðlaun einhverntíman snemma á 20. öldinni. Þetta er mjög athyglisverð bók en ég veit samt eiginlega ekki um hvað hún er.

Eru mínípils málið? (8 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hafiði trú á að mínípilsin muni koma aftur eins og slegið er upp í öllum helstu tískublöðum?

Destiny's child (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eins og Christina Aquilera er alltaf hallærisleg þá eru þær alltf flottar t.d. í Survivor myndbandinu, Independent Women úr Charlie's Angels og á Grammy verðlaununum, þær eru flottar. Textarnir hjá þeim eru líka ekki alveg jafn niðurlægjandi fyrir konur, þær eru meira með ímyndina um að vera sterkar á meðan Britney og Christina eru alltaf að deyja úr ástarsorg og láta karlmenn fara illa með sig!

Pabbi á hjól (1 álit)

í Mótorhjól fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Pabbi minn er nýbúinn að kaupa sér nýlegt KTM hjól og er að reyna að drepa sig á því. Mig langar að prófa en ég þori ekki að spyrja. Mynduði segja að hann sé með gráa fiðringin?

Björk (7 álit)

í Hugi fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvernig væri að fá Björk inn sem áhugamál? Ég meina heimsfrægasti Íslendingur í geimi!

Christina Aquilera (7 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég var að pæla hvernig í óskupunum það er hægt að vera svona sæt, mjó og rík með her aðstoðarfólks og líta samt alltaf út eins og algjör hálviti? T.d. þegar hún kom fram á Grammy verðlaununum hún var í heklaðri kápu og bara almennt algjör hörmung!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok