1. Jórunn vildi engan frekar en Héðin bróður sinn til fylgilags við laxveiðar. 2. Hún tefldi ekki á tvær hættur með agnið og stundaði fluguhnýtingar sjálf. 3. Henni hugnaðist best flugan, sem nefnist „Norska púpan“. 4. Þau lögðu af stað í bítið fallegan sumarmorgun úr Reykjavík. 5. Förinni var heitið í Gljúfurá nyrðra þar sem Húnavatnssýslur mætast. 6. Þar eru fýsilegir hyljir og oft geysimikil veiði. 7. Það rigndi mikið dagana á undan eftir langvarandi þurrka. Minnir að ég hafi breytt á...