CSS, eða cascading style sheets gera það að verkum að það er hægt að hafa meiri sjórn á útliti vefsíðna, t.d. liturinn á þessu áhugamáli á huga. bakgrunnar, textar og linkar, form hlutir og fleira, eru með ákveðinn style á sér. Þetta er hentugt, t.d. ef þú ert með síðu og ákveður svo allt í einu að allur texti ætti að vera einum pixel minni, þá er nóg að breyta einu style sheet skjali, ef þú notar sama fyrir allar síður og þá breytist textinn á öllum síðunum, einfaldara en að breyta font...