Ég hef velt þessum málum fyrir mér í rúm 5 ár núna og skoðað marga kosti. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að eftirlit hins opinbera myndi mæta mjög mikilli andstöðu eins og við sjáum glöggt á þessum skrifum hér. Samt trúi ég því innst inni að eftirlit með bílaumferð geti talist eðlilegt vegna þeirrar hættu sem henni fylgir. Er ekki annars verið að fylgjst með okkur hvar sem er? Allt sem við gerum yfir netið er skráð og rekjanlegt, allt sem við kaupum með kortum er rekjanlegt, hægt er að...