Já, það er hægt að velta sér endalaust uppúr þessu.. En því miður þá dæma allir eftir útliti. Það er einfaldlega vegna þess að ef maður á að mynda sér skoðun á einhverju verður maður að hafa einhvern grunn til að byggja hana á. Þannig að það er mjög erfitt að dæma ekki eftir útliti, við fyrstu kynni þ.e.a.s., seinna meir ef maður kynnist viðkomandi þá getur maður dæmt hana eftir fleiru.