Jújú, ég sætti mig alveg við einn og einn. En ekki einn á hálftíma fresti þar sem meginmálið er kannski 10 - 20 stafir og nafnið á korkinum er “URG )=$&&#”=)". Bara leiðinlegt að það er ekkert af viti sem er sent inn, ekkert sem maður getur pælt í eða hefur ekki tekið eftir.
Eins og einhver stjórnandi huga ritaði hérna um daginn, þá er Nöldur korkurinn til að nöldra yfir einhverju á síðunni(Eitthvað sem mætti bæta?) eða einhverju sem er að gerast á íslandi eða í heiminum í dag. Að skrifa kork um veikindi til að fá stig, láta fólk vorkenna sér eða bara uppá grínið er í meira lagi heimskulegt finnst mér.
Ég er ekki að “rífa” mig neitt, bara lýsa yfir óánægju minni hvernig Nöldur korkurinn er notaður, ekki á réttann hátt þ.e.a.s. Mér finnst allavega tilgangslaust að senda inn: “Mér er kalt.” “Ég er veikur.” “Ég hata skóla.” Eða eitthvað í þá átt.
Nöldur korkurinn er ekki til að nöldra yfir kulda eða veikindum eins og einhver stjórnandi huga sagði um daginn, hann er til að nöldra yfir síðunni eða því sem er að gerast á íslandi í dag t.d. Fífl
Þar sem ég er skólafélagi Duff og þekki hann þokkalega vel þá get ég með réttu sagt að eftir minni þekkingu er hann þvert á móti þröngsýnn, gætiru komið með dæmi fyrir þessari þröngsýni? :)
Mér finnst það vera einmitt öfugt, fólk sem hefur lent í andlegum ógöngum hættir að trúa þegar það sér að það er enginn “guð” til að hljálpa þeim í neyð.
Væriru til í að koma með rök(ef þú getur) fyrir því að fólk þurfi að hafa verið misnotað eða lent í öðrum andlegum “hremmingum” til að trúa ekki á guð? “Ef að þú ert trúleysingi, þá trúirðu ekki á guð og heldur ekki paradís eftir þetta líf. Þannig ég ætla að biðja alla trúleysingja að bara vinsamlegast fremja sjálfsmorð, því að þið þurfið hvortsem er ekki að vera hérna. Þið eruð bara að taka pláss frá okkur hinum!” Eigum við trúleysingjarnir semsagt engann rétt til að lifa?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..