Ég verð nú að segja að þessi skoðanakönnun um flug vefina sé illa gerð. Þarna vantar inn einn allra öflugasta flugvefinn sem er www.flugheimur.is þarna inni er að finna nýjustu upplýsingar um hvað er að gerast í fluginu. kv. himnahaukurinn “skyhawk”
Hafið þið heyrt eitthvað meira um þennan sem þurfti aðstoð flugmálastjórnar vélarinnar og þyrlu gæslunnar til að komast inn til KEF? Ég heyrði að hann hefði farið í sjóinn við Skotland. Ef svo er var þá ekkert tékkað á vélinni er hann komst til KEF? kv. haukurinn
Hvað segið þið, á maður að skipta út SLR filmu vélunum fyrir SLR digital? Eru gæðin orðin nógu góð í digital? Nú sá ég nýju Fujifilm F602 sem gefur 6 milljón pix. Eru þetta ekki orðin alveg þrusu gæði? Endilega deilið upplýsingum ykkar.
Af hverju taka flugskólarnir sig ekki á og markaðssetja einkaflugið í stað þess að horfa bara á atvinnu prófið. Það er fullt af mönnum (og konum) sem stunda vélsleða og fjalla ferðir og dýrum jeppum. Einn flottur Patrol er jafnvel dýrari en góð einhreyfils vél. Það er kominn tími á að einkaflugið sé kynnt vel og markaðssett þannig að fólk horfi ekki á þetta sem hobby fyrir atvinnuflugmenn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..