Við getum ekki vitað hvort það sé eitthvað æðra okkur Það er akkurat hvað mín trú felst í. Ég er alls ekki úber trúuð. Einu skiptin sem ég fer í kirkju er á miðnætti á jólunum (og það byrjaði vegna þess að ég þurfti að syngja þar), í brúðkaup, jarðarfarir og skírnir. Eina sem ég kýs að trúa á er að þeir sem eru farnir frá mér, dánir. Séu ekki bara að rotna ofan í jörðinni. Mig langar að trúa því að þau eru að gera eitthvað annað. Ég veit ekki hvað. En ég vil trúa því að þau séu hamingjusöm....