Satt. Ég reyndar viðurkenni það að fullu að það er ekkert víst að guð sé ekki til. Alveg eins og það er ekkert víst að það sé ekki risastór kolkrabbi í miðju alheimsins. En ég nota mína eigin rökhugsun og gamla gríska rökfræði sem byggist á því að ef eitthvað er nógu ólíklegt má alveg segja að eitthvað sé ekki til. Alls ekki fullkomin hugmyndafræði, né viðeigandi á öllum stöðum. En ég sjálfur er fullviss um að það sé enginn guð til, þó svo að ég geti ekki sannað, né sannfært neinn um það....