Halastjarna á himni Þessa dagana er halastjarna sýnileg á kvöldhimninum. Hún er ekki mjög björt (birtustig 3-4) en sést þó með berum augum og auðveldlega í handsjónauka. Á dimmum himni sést greinilega hali sem er 1-2 gráður á lengd, en glöggir athugendur segja hann vera mun lengri. Halastjarna þessi heitir C/2002 C1 eða Ikeya-Zhang eftir þeim sem fundu hana hinn 1. febrúar 2002. Reyndar voru það þrír áhugamenn sem komu auga á hana sama kvöldið. Fyrstur var Japaninn Kaoru Ikeya, síðan...