Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nintendo Game Cube er komin til landsins (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ágætu Hugarar! Nú á fimmtudagin var (13.12) barst til landsins eitt eintak af nýju leikjatölvunni frá Nintendo. Er hægt að berja gripinn augum í verslun Bræðranna Ormsson, sem er umboðsaðili fyrir Nintendo á Íslandi. Tölvan er tengd við 50" Pioneer Plasma skjá og verð ég að segja að grafíkin er vægast sagt töff. Ekki er komið verð á vélina en það getur verið frá 20.000- 30.000 kr en í raun er ekki hægt að segja fyrir um verð, miðað við hrapandi gengi krónunar. Sala hér á lendi hefst...

SYNISHORN AF GAME CUBE (6 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Agætu Hugarar!!!!! Nu i dag barst inn i verslun Bræðranna Ormsson eintak af nyju leikjatölvunni fra NINTENDO. Er þessi agæta tölva tengd við 50" Pioneer Plasma tæki svo grafik tölvunnar fær að njota sin til fullnustu. Aætluð koma þessarar tölvu a islenskan markað er i april 2002. Mun verðið vera um 30.000 kronur, þo er það ekki komið a hreint. Allir ahugasamir um þessa nyjung eru hvattir til þess að koma niður i Bræðurna Ormsson, Lagmula 8, og lita a gripinn. Ansi skemmtilegt apparat þetta....

Ferskeytlu hornið (1 álit)

í Hugi fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég var að leita að einhverri skemmtilegri grein til að lesa þegar ég skyndilega sá hlut sem ég hafði séð áður en ekki teikið eftir. Þannig er mál með vexti að til er “áhugamál” sem flokkast undir Ýmislegt, þar er innan “Brandarar og skóli” Svo er til áhugamál sem er bókemnntir og listir. Mér fannst allt í einu að brandarar séu hálfgerð list og sérstök fræði. Það geta allir sagt brandara en misvel þó, sumir eru alveg ömurlegir í því en aðrir geta látið fimm-aura brandara vera fyndinn. Það að...

Ultima Online, hver spilar???? (0 álit)

í Tölvuleikir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Halló! Spila Íslendingar ekki Ultima Online? Ég er kannski ekki á réttu Shard-i en hvar halda þessir hólmabúar sig?????

Móðir mín..... (4 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Henni móður minni þykir hún mikið ein og langar í hund. Telur það geta verið henni félagsskapur. Samt er vandamál. Hvernig hund??? Ekki hund sem er eins og konan frá mæðrastyrksnefnd, hann var í peysu. Við vorum að velta fyrir okkur American Cocker Spaniel. Hvernig eru þeir hundar að eðlisfari??? Og hárlos. Takk kærlega, Siggibet

Kellingin sem neitaði honum um bjór..... (0 álit)

í Húmor fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hann Magnús var yfivaldið á sínu heimili og þegar hann kom heim úr vinnuni settist hann fyrir framan kassann, hrópaði á kellu: Komdu með bjór!“ Ævinlega kom hún Jóna með bjórinn á svipstundu en þótti það miður hvað kallin drakk mikið. Dag einn er hún Jóna í saumaklúbb nágrannakonu sinnar sem heitir Guðrún. Guðrún er þar með miklar yfirlýsingar um það hvernig hún tamdi hann Björn sinn til að vera almennilegur eiginmaður, enginn bjór, fótbolti, fyllerí með félögunum eða neitt á þess að hún...

Dungeons&Dragons The Movie (9 álit)

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sælt veri fólkið! Ég var að velta fyrir mér hvort einhver vissi hvenær von væri á myndini um D&D. Ég var úti í Frakklandi í janúar (á bretti, bara gaman) og þar var verið að sýna Dungeons & Dragons í bíó! Þetta var sko í ölpunum. Eitthvað þykir mér íslensk kvikmyndahús sein á sér. En aftur að málinu, hvenær er von á myndinni?!? Með fyrir fram þökk, Siggibet

Andrés Önd (4 álit)

í Myndasögur fyrir 23 árum, 1 mánuði
Heilir og sælir hugamenn og konur! Hvernig er það, les enginn lengur Andrés Önd?!? Bara forvitinn, veit um fátt skemmtilegra lesefni nema þá kannski Gretti. Passið ykkur á bílunum. Siggibet

Never Winter Nights (4 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvenær, hvar, hvernig og allt það. Ég býð froðufellandi eftir Never Winter en hvunær kemur þessi blessaði leikur út????? Jafnframt, ætli maður þurfi ekki ISDN ADSL eða e-ð líkt því til að geta spilað. Þú sem veist e-ð um leikinn og allt það, endilega vertu svo væn(n) að upplýsa mig. Siggibet
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok