Ástralska hljómsveitin Silverchair sló í gegn í Bandaríkjunum 1994 með laginu Tommorow af fyrstu plötu sinni; Frogstomp. Þá voru allir meðlimir sveitarinnar aðeins 15 ára. Þeir Chris Joannou bassaleikari, Ben Gillies trommuleikari og svo söngvarinn og gítarleikarinn Daniel Johns. Daniel er einungis að verða 24 ára en samt búinn að vera lengi í sviðsljósinu. Daniel Johns fæddist sunnudaginn 22.apríl í Newcastle í Ástralíu árið 1979. Æska Daniels snerist mikið um tónlist og brimbretti en eins...