Frábær grein. Ég var ekki viss um hvað ég ætti að gera við puttana á mér, en núna veit ég að þeir eiga greinilega ekki að vera þar sem sólin skín ekki.
Þetta er SKRÍMSLI! Var búinn að leita að þessari elsku í næstum ár þegar Tónastöðin tók upp á því að fá umboðið fyrir þetta og ekki var maður lengi að fjárfesta í Mammoth hjá þeim. Krafturinn í þessari skepnu er epískur..
Beware samt.. að radda allt bara í fimmund hljómar viðbjóðslega til lengdar. 3undir og 6undir eru vinsælastar en kontrapunkturinn er samt alltaf svalastur (þegar 2 mismunandi laglínur fléttast saman án þess að önnur sé að fylgja hinni).
Þeir eru nú ansi margir sem fara létt með hana.. Adam Fulara er nú ansi líklegur til að luma á henni t.d. og þá betur heldur en sjálfur meistari Becker.
Skiptir engu máli hvaða tónlistarstefnu þú stefnir á, þú lærir mjög mikið af því að fara í skóla. Persónulega mæli ég með jazz. Ef þú getur spilað jazz almennilega ferðu leikandi með allar aðrar tónlistarstefnur.
Klárlega. Ef gítarleikurinn er ekki EPIC og sjúklegur á allan hátt er bandið sjálfkrafa epic feil. Sýna verður fram á að gítarleikarinn eigi sér nákvæmlega ekkert líf utan gítarsins. Þannig virka hlutirnir einfaldlega í nörda-metalnum :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..